Jæja þá er ég fæddur, ég fæddist þann 24.07.06 kl:18:06, á afmælisdaginn hennar Rósu frænku og Möggu frænku. Ég var 3770gr og 51cm semsagt 15 merkur. Mamma, pabbi og Steini stóri bróðir geta ekki hætt að horfa á mig, Steini er svo góður við mig og passar að ég sé ekki að gráta. Ég hef verið nefndur Sigurður Ísak í höfuðið á Sigurði langafa og Ísaki frænda. Þeir eru báðir örugglega að fylgjast með mér hinum megin frá og passa mig voða vel. Steini bróðir (Þorsteinn Guðni) er fæddur 2004, svo á ég líka litla systir sem heitir Ingibjörg Svava (2008)
Mamma mín og pabbi heita Halldóra (1977)og Tyrfi (1976). Stóri bróðir minn heitir Þorsteinn Guðni (2004). Endilega kíkið í myndaalbúmið þar sem mín fyrsta sónar-mynd er :-).
Einnig er hægt að skoða vefdagbókina mína þar sem að mamma, pabbi og ég skrifum.
Ég á margar ömmur og afa. í Föðurætt þá heitir afi minn Steini og amma mín Inga. Langafi minn Kobbi og langamma Nína.
Í móðurætt þá heitir afi minn Hreinsi og amma mín Svava, svo á ég svona auka afa ekkert smá heppinn hann er maðurinn hennar ömmu og heitir Kristján afi. Langamma mín heitir Halldóra og er kölluð Dolla amma.
Svo á pabbi minn 2 bræður, þeir heita Einar (1981) og hann á kærustu sem heitir Dódí (1983) og þau eiga strák sem heitir Þór (2002) stóri frændi og eina stelpu sem heitir Adda Þorbjörg (2004). Rúnar (1983) á konu sem heitir Eybjörg (1984) og þau eiga litla stelpu sem heitir Þorbjörg Elísabet (2004).
Svo á mamma 3 bræður, þeir heita Bogi (1980) og hann á konu sem heitir Sigurrós (1980) og eiga þau einn strák sem heitir Axel Hreinn (2011). Eyþór (1991). Bjarni (1993).
Svo á ég langafa og langömmur sem að fylgjast með mér hinum megin frá og passa mig voða vel. Þau heita, Tyrfingur langafi, Beta langamma, Siggi langafi, Lára langamma, Kalli langafi og Bogi langafi. :-)